|
|
24.10.2007 18:24:31 / athenaa
ákvað að henda hér inn einu örlitlu bloggi, því ég hef ekkert mikið merkilegra að gera. Er bara hérna heima hjá Heiðdísi systur að passa Þorgils og hann er að horfa á Villta Folann. Reyndar mjög góð og átakanleg mynd. En hálskyrtlatakan er á morgun. Sjitt hvað ég er hrædd. Þetta er víst algjör martröð. Að láta glenna upp á sér trantinn, taka kjálkann úr lið og klípa úr manni tvö líffæri í hálsinum. Toga þau síðan úr og setja þau í krukku. Heldur betur ósmekklegt. Ætli maður fái að eiga kyrtlana?? Aþena var sótt á Selfoss áðan, til að koma heim í vetrarfrí frá skólanum. Við vorum nú ekkert aleg viss hvort við ættum að fara að flytja hana í þessu sudda veðri hérna á suðurlandi. EINS OG ÞAÐ ER REYNDAR ALLTAF!! En það hófst allt og nú er hún hress og kát í heimahúsinu sínu hér á hellu! En ég er búin að komast að því að RIGNING er það sem ég hata mest í heiminum. Ef maður ætlar rétt að skjótast út í búð, þá þarf maður að skipta um föt þegar maður kemur heim aftur, því maður er rennandi blautur, og ekkert er óþægilegra en blautar buxur og sokkar! Síðan ég byrjaði í skólanum þessa önn þá hef ég ekki slétt á mér hárið einu sinni til að fara í skólann, því það tekur því ekki... þessar 10 sek sem það tekur að hlaupa í bílinn og útúr honum aftur og inn í skóla gera mann gegnblautann ! og þá lítur maður út ens og vönkuð varphæna sem nennir ekki að greiða sér á morgnanna. En ef maður hatar rigningu jafn mikið og ég, af hverju þá að velja suðurlandið til að búa á?? Það er ALLTAF rigning hérna... óþoladi !! allavega, þá er þetta síðasta bloggið sem ég skrifa með hálskyrtla invortis.. svo ég vil bara segja: blessuð sé minning þeirra ! takk fyrir mig og hálskyrtlana...
»
15.10.2007 16:46:49 / athenaa
Loksins ákvað ég að hella mér í að blogga. Ég ætla bara að láta eins og ég hafi bloggað daglega og segja í stuttu máli frá því sem á daga mín hefur drifið upp á síðkastið. Auðvitað er það aðallega skólinn sem er í gangi hjá manni. Svo eru það hestarnir. Aþena fór í hnykkingu á fimmtudaginn seinasta og það kom bara ágætlega út. Ég fór á hana í dag, reyndar endaði það með því að ein skeifan fauk af henni, en hún var annars mjög góð. Svo er Eks kominn inná hús hjá Heiðdísi, hann fer í rönken mynd á þriðjudaginn til að athuga með spattið í honum. Svo er það hann Gráni kjáni sem Heidí er að brillera með. Ég sá þau um daginn, og þvílík og önnur eins breyting á hrossinu síðan Heidí fékk hann. Halló-vín ballið var um helgina. Ég og Sara og Nína og Þiorbjörg fórum sem ofursexý flugmenn. Eginlega verð ég samt að segja að ég hafi orðið fyrir örlitlum vonbrygðum með þetta ball. Tónlistin í byrjun var vægast sagt ömurleg, og var ekki nema í meðallagi seinni hlutann. Reyndar eyddi ég mestum þeim tíma í að berja einn gothara og leita að Pétri..  Pétur fór heim á Hólmavík áðan. Ég var ekki að ná að sætta mig við það að hann gæti bara farið heim og hvert sem hann vill en ekki ég ! Ég er bara hér föst í þessum bansetta skóla mínum. (sem er reyndar ekki svo slæmur). En Pétur er búinn að vera mjög veikur upp á síðkastið. Með mikinn hita og sýkingar í ennisholum og hor í nös. En hann er allur að koma til núna á ákvað því að fara á Hólmavík að hitta hvolpana sína og mömmu sína og pabba auðvitað. Ég ætla heim á næstu helgi að slappa af held ég. Það er svo langt síðan ég fór þangað síðast að það er ekkert normalt ! núna er ég reyndar bara að deyja í bakinu. Veit ekki alveg að hverju, en ég kenni bara vöðvabólgunni um það held ég. Set inn hérna nokkrar myndir af fallegustu Aþenu og okkur á Halló-vín.. 
Aþena mín :* og ég ! (flottur múll?) 
Aþena skallaði Þorbjörgu smá.. 
Sæææt ! 
Fótarnir okkar sætu. :** 
ég og uglan hennar Nínu ! (þetta er b.t.w. mynd á veggnum hennar Nínu) 
Við alveg viiðbjóðslega sexý í flugmannsbúningunum okkar Sara,Björk,Þorbjörg og Nína fína ! Lofa að blogga meira eftir þetta.. kv Björk
»
05.09.2007 14:14:35 / athenaa
Miðvikudagurinn 5. september árið 2007. Uppáhalds dagurinn minn í vikunni, miðvikudagur. Miðvikudagur er uppáhalds dagurinn minn vegna þess að þá er mánudagurinn búinn. Það er alltaf svo erfitt að standa upp úr rúminu kl. 07:00 á mánudögum og byrja á því að þurrka framan úr sér þriggja daga gamlann maskara og meik síðustu viku í blautann klósettpappír. En þrátt fyrir allt stendur maður upp, einungis af einskæðum dugnaði og sjálfspíningarkvöt. Miðvikudagur er uppáhalds dagurinn minn vegna þess að þá er þriðjudagurinn búinn. Þriðjudagar í mínu lífi innihalda 2x 80 mínútna (160min) fyrirlestrur frá Magnúsi Lárussyni sem enda yfirleitt með rifrildi og deilum milli kennara og nemenda. Fyrir utan það eru þriðjudagar ágætir. Miðvikudagur er uppáhalds dagurinn minn vegna þess að þá er fimmtudagur daginn eftir. Fimmtudagar innihalda ferskleika út og í gegn, einfaldlega vegna þess að það er föstudagur daginn eftir ! Miðvikudagur er uppáhalds dagurinn minn, því föstudagur er þarnæsti dagur við miðvikudag. Sem segir okkur að þá er komin helgi. ! Miðvikudagar eru einfaldlega snilld ! Ég skil ekki hvað ég er að eyða dýrmætum tíma mínum í að skrifa þetta leiðinlega og tilgangslausa hjal um daga vikunnar. Þar sem ég gæti verið að lesa "Drengene fra Sankt Petri" sem er einfaldlega leiðinlegasta bók sem ég hef þurft að lesa. Ég gæti líka verið að læra Völuspánna utanað, og gluggað í Möttulssögu með öðru auga. Dansk der dur er líka eitthvað sem ég get lesið, svo ég minnist nú ekki á allar smásögurnar í ensku. Svo er það auðvitað þetta heimilislega sem bíður alltaf, eins og þvottur og innkaupalistinn og allt það. (Kjeeellliing) Feita litla hrossið er líka að bíða eftir mér. Vóó.. ég held ég hreinlega verði að fara að gera eitthvað.
»
29.08.2007 20:32:44 / athenaa
Já, þessi færsla er kölluð slen, hún fær þann heiður að vera skírð eftir sjálfri mér. En ég fann þetta snilldar orð áðan til að lýsa ástandinu á sjálfri mér þessa stundina. Dagurinn er einfaldlega búinn að einkennast af sleni. Ég vaknaði eins og vönkuð varphæna í morgunn og sjálfstraustið fékk taugaáfall þegar ég leit í spegilinn. Svo reyndi ég að lappa aðeins upp á krullaða gaddavírinn á hausnum á mér og þá gat ég sótt einn fjórða af sjálfstraustinu aftur. Eftir þessar tilraunir með útlitið fór ég og tók vítamínin mín og át banana. Það hefði ég ekki átt að gera, vegna þess að bananinn hlýtur að hafa slæm áhrif á mig. Ég bara fann það einhvernveginn. Svo var það bara þetta venjulega.. busun og svoleiðis! Ég fór heim, og lagðist upp í rúm með tölvuna mína, og bara gat hreinlega ekki staðið upp aftur fyrr en ég heyrði að það var skemmtilegur þáttur í sjónvarpinu. Vanalega er ég ekki svona svakalega háð sjónvarpi og tölvu. En eftir þáttinn þá tók ég mig taki og dreif í að elda mér núðlur. Þær gáfu mér ofurmátt svo ég skrapp upp í Austurkot og hreyfði merina mína. Talandi um merina mína. Ég er að hugsa um að hafa svona mánaðarlega mynd af Aþenu hérna inni á síðunni. Einfaldlega til að fylgjast með hvað hún grennist mikið. Ákvað að leyfa ykkur að vera með og sjá myndirnar líka. Gaman. Pétur er á leiðinni núna með gipsið sitt. Gaman. Eeen.. bloggi formlega lokið að sinni.. með sleni--Björk--
»
22.08.2007 23:57:49 / athenaa
Velkomin lesendur góðir á fyrstu færslu skólaársins. Þessi færsla mun einkennast af hori og slefi. (hljómar spennandi?) þá byrjum við: Ég heiti Björk Ingvarsdót... grín ! ******************************************************************************************************************************************************************************************************* Skólinn er byrjaður aftur eftir sumarfríið stutta, eins og ég kalla það. Mér fannst þetta sumarfrí eiginlega vera eins og extra löng helgi. Reyndar er ég vön að njóta þess vel þegar ég er í löngu helgarfríi, en það gerði ég ekki í þetta sinn. Ég einfaldlega fann mig engann veginn. Ég var nánast allann tímann með hornös, hálsbólgu eða hausverk. En þannig er það nú bara.. og ég ætla að vona að það komi annað sumarfrí eftir þetta En eins glöggir lesendur hafa uppgötvað er skólinn byrjaður og ég komin á Selfoss. Ég er ein í íbúð nr. 115 þangað til eftir næstu viku, en þá kemur Pétur til mín og verður herbergisfélagi minn. Á sunnudaginn kemur mun Aþena koma á hnakkapleisið og rokka fm 957 með okkur hinum. Að hennar sögn líkar henni það ágætlega, en sökum offitu og örlítillar hornasar getur hún lítið hreyft sig þessa dagana. En það mun sko ekki verða þannig eftir þennann vetur.. óóneei ! Í dag fór ég og keypti bækurnar mínar. Beið í skitinn klukkutíma í biðröð til að komast að bóksölunni, og það eitt til að borga 16.000 kall fyrir herlegheitin. Svo nú verð ég að plokka klístruðu krónurnar úr vasanum á gömlu úlpunni minni og leggja það inná sparireikning og geyma til hörðu áranna. Að hugsa sér bara ! Svo er ég náttúrulega komin á kagga svo það þýðir ekkert að vera að bruðla með sparíféð sem nota þarf í bensín og mat og annað slíkt. Eitthvað verð ég nú að borða. En það er aðallega brauð, flatkökur og hrísgrjón þessa dagana. Svo maula ég jógúrt og ét lýsi í töfluformi. En ég hef það bara gott! Hvað get ég sagt ykkur meira ? Sennilega ekki neitt! Blessíkex múhahahhaha ! grín! nei... djók !
»
30.07.2007 18:01:29 / athenaa
ákvað að henda inn einni skitinni færslu hérna á meðan Pétur er
að borða..
fréttir í grófum dráttum:
Hamingjudagar búnir fyrir löngu..
Ég fór frá Hemlu án þess að kveðja..
Hef ekkert komist á hestbak síðan þá..
Bryggjuhátíðin búin og var mér sýndur hnefi í fés á þeirri
hátíð..
Ball með sniglabandinu á Hvammstanga búið..
Ég á ljósbláann bíl..
Vinnan í frystihúsinu í góðum fíling..
Kvefið lætur sig ekki vanta..
og síðast en ekki síst er ég hvítari en allt sem hvítt er því ég
er inni allann daginn.
Svo er það verslunarmannahelgin næstu helgi og ætli maður endi
ekki norður í Árneshreppi í litlu tjaldi og ringningu, með hor í
nös og viskírödd !
sjáumst þar 
segiði svo að gelgjustælar séu ekki
töff!!!!
b.t.w. ég er með mola í munninum en ekki
þroskahefta tungu !
»
27.06.2007 12:13:51 / athenaa
ég ákvað að skíra þetta blogg eftir áfangastað dagsins..
HÓLMAVÍK !!! váá hvað ég hlakka óendanlega mikið til að fara heim
að hitta mömmu, pabba og hafa báðar systur mínar og krakkana þeirra
heima.. og svo er ég að deyja ég hlakka svo til að fara að djamma
með nammistelpunum og fleirum.. ! Svo auðvitað verður frábært að
hitta Pétur og gera eitthvað gaman Ég elska Hólmavík !!!
Nú er ég bara að passa Þorgils til tvö.. og þá
legg ég af stað Reyndar ætla ég aðeins að stoppa í Rvk til að
fara í Kringluna.. Ég er búin að hjóla svona c.a. 3 km í dag. Ég
fór nebblilega í hjólatúr með Þorgils litla frænda... og það er sko
ekkert grín að reyna að hjóla á eftir honum upp allar brekkurnar
sem hann brunar upp ! Jafnvel þó maður sé á gírahjóli en hann ekki
! En sem betur fer eru ekkert sérlega margar brekkur hérna á
sléttlendinu Hellu !
Hestafréttir
Á Hemlu gengur allt sinn vanagang.. við erum farnar að ríða út á
flestum trippunum sem við erum með. Það er mjög gott því það fer
svo miklu minni tími þegar við getum þjálfat tvö unghross samtímis.
Aþena er bara í haga hérna á Hellu með Vissu og Grána og fl. Hún
hefur það ágætt greyjið, fyrir utan smá sár sem hún er með á
enninu, það var reyndar pínu ógeðslegt því það voru komnar flugur í
það, ég setti eitthvað krem á það sem fælir flugur í burtu 
Ógeðslega verður gaman á Hamingjudögum.. 
P.s. nammistelpur, ég ætlaði að blogga þetta blogg á nammistepur
síðunni en ég bara gat ómögulega munað passwordið 
Sjáumst í kvöld allir ;**
»
21.06.2007 21:00:37 / athenaa
Ég hef ekki bloggað heillengi, en það á sér eðlilega skýringu..
skýringin er sú að ég er að vinna á Hemlu og þar er hvorki tími né
netsamband til að komast í tölvu. Núna er ég heima hjá Heidí systir
á Hellu. Ég er með eitthverja bévítans ælupest, svo ég veit ekki
hvort ég kemst í vinnuna á morgun.
En ég hef lent í ýmsu síðan ég byrjaði feril minn sem
tamningamaður. Meðal annars er risa mar á ristinni og stirður rass.
En svona er þetta víst bara þegar maður er í þessum árans hestum.
Reyndar skil ég ekki hvað það er sem ég sé við þessa hesta, þetta
er mikil þolinmæðisvinna og jafnframt áhættusamt verk. Hvað veit
maður nema að hrossið hlaupi með mann á vegg eða eitthvað álíka.
En eitthvað er það sem togar í mann á þessa braut í
lífinu, og ætli maður verði ekki bara að fylgja því 
ef ég verð í betra stuði í fyrramálið þá kem ég kanski með
ítarlegri færslu af öllu sem á daga mína hefur drifið þessar vikur
sem ég hef verið frá..
»
18.05.2007 18:21:45 / athenaa
Ég var spurð að því í gær af hverju ég hefði breytt þessum
bleika fallega lit sem var á síðunni í svona svartann og
dimmann lit. Ástæða þess er skýr, ég hef ekki haft tíma til þess að
blogga neitt svo það þurfti að lækka rostann hérna um nokkur
milligrömm.
Eins og er vinn ég hjá pabba við að skera af netum. Fólk spyr
sig hvað það er, en það er sáraeinfalt. Maður er einfaldlega að
losa netið af svona köðlum sem eru kallaðir teinar. Maður þarf
að skera fullt af böndum í sundur þangað til þetta losnar. Svo
er alls kynd stúss í kringum það. Við pabbi erum reyndar
með mjög góða aðferð við að skera þetta, og við erum eins
og eldibrandur þegar við komum saman úti á grundum.
18 net eru skorin og ekki nema 52 eftir.
Ljóst er að í byrjun júní fer ég að vinna á Hemlu hjá
Vigni Siggeirssyni og Lovísu.
Pétur á afmæli í dag. Honum finnst það gaman, útaf því að ég
bakaði tvær kökur fyrir hann í gær. Við gæddum okkur á annarri
kökunni í morgunn og héldum svo til vinnu.
En nóg er að gera en lítið til að skrifa um.
Ein frétt í viðbót: Ég DATT áðan !!!!!
Yfir&út
»
03.05.2007 20:41:46 / athenaa
Mér leiddist alveg óhemju mikið í dag. Enda setti ég nýtt í allt
mánaðarins draslið og ákvað að blogga í leiðinni. Að hugsa sér
dugnaðinn 
En ég fór í íslenskupróf í morgunn. Mér gekk ekki eins vel og ég
hafði ætlað mér, en ég vona að ég hafi náð.. sem ég held reyndar að
ég hafi gert, en ég ætla nú ekkert að vera að dæma um það
fyrirfram. Í gær, þá fór ég í tvö próf. Íþróttapróf og svo
reiðmennskupróf, sem er verklegt. Mér gekk vel í báðum þessum
prófum. En ég var all svakalega stressuð fyrir reiðmennskuprófið.
Ég var búin að vera með hnút í maganum allann daginn, en svo um
leið og ég fór að hita mig og Aþenu upp, þá gekk þetta
allt svo vel að ég hætti bara að stressa mig á þessu. Prófið gekk
þokkalega, en við höfum samt farið betur í gegnum þetta áður. Þegar
ég steig af baki fékk ég svo mikið spennufall að ég titraði, það
var nett. En svo á morgun þá er bóklegt hestamennskupróf, og þá
verður sko tekið á því og brillerað í gegnum fóðurfræði og
svoleiðis gums.
Ég veit ekki hver titill þessarar færslu verður ég er ekki að
skrifa um neitt sérstakt. Kanski ég hafi bara engann titil. Ég held
að það sé lóðið. 
Mamma og pabbi koma að sækja mig á mánudaginn. Svo förum við
heim á hólmavík á þriðjudaginn. Það verður geggjað. Ég hlakka
baaara til. Ég er búin að vera eitt ár í framhaldsskóla.. eitt ár
sem ég er ekki búin að vera hjá mömmu minni, heldur sjálfstæður
unglingur sem hefur sjálfstæðar skoðanir og þarf að vera sjálfstæð
til að kaupa mat og svoleiðis sjálf.
Oft þegar við Þorbjörg erum hérna heima að ræða um það hvað það
þurfi að gera þennann daginn, þá líður mér oft eins og ég sé orðin
kona. Við tölum oft um það að við verðum að fara að setja í
þvottavélina, og vaska upp og svo vantar ost og uppþvottalög og við
förum saman í búðina með innkaupalista. Ég held að ég sé að verða
kona. Því mér líkar þetta bara ágætlega, að minnsta kosti þegar ég
er hér á selfossi. Ég myndi ekki sætta mig við það að þurfa að gera
þetta allt heima hjá mömmu. Það er útaf því að þar er hún meiri
kona heldur en ég, ég er alls engin kona, en samt stundum.
KONA ?? pff.. ekki fyrr en um fertugt 
Ástarkveður Björk (ekki) kona
»
01.05.2007 11:49:01 / athenaa
Vá, ég verð að fara að blogga oftar..
ég fæ alltaf samviskubit yfir því að blogga ekki. Mér finnst
ósanngjarnt að ég lesi blogg annarra en bloggi svo ekkert
sjálf..
Síðast þegar ég sló inn færslu var ég
á hólmavík með hálskraga og fatla. En ég var ekki lengi að hrista
þann viðbjóð af mér og drífa mig í skólann á ný. Síðan ég kom í
skólann hafa aðallega verið prófaundirbúningar í öllum tímum. Það
stressar mann sko upp.. Svo eru það líka knapamerkjaprófin, sem eru
verkleg. Ég tek mitt próf á Aþenu, og vona bara það besta. Ég er
búin að vera að æfa mig mikið og það hefur gengið alveg ágætlega..
ég er einmitt að fara í aukatíma fyrir prófið í dag klukkan
13:00.
Í dag er Verkalýðsdagur, en í gær var
dugnaðardagur. Ég og Þorbjörg vorum í skólanum að læra og læra og
svo komum við heim og Þorbjörg æfði sig á flautuna og ég tölvaðist
aðeins á meðan.. Eftir þetta þá tókum við okkur til og löbbuðum með
tómar töskur á bakinu í Nóatún og keyptum okkur meðal annars
eldsteiktann kjúkling, franskar og appelsín. Eftir búðarferðina
vorum við svo svangar að við átum kjúllann.. reyndar ekki nema
tæpann helminginn af honum 
Svo fórum við að taka til. Þetta var
ekki nein venjuleg tiltekt, þetta var alsherjar tiltekt sem felst í
því að þvo uppá öllum skápum og inní öllum skápum, og henda öllu
ónýtu. Þetta gerðum við stöllur allt sjálfar og tókst svona líka
bærilega. Það var ekkert smá þægilegt að fara síðan í sturtu eftir
alla þessa tiltekt og leggjast svo fyrir framan sjónvarpið í aalveg
hreinni íbúð. Við horfðum á myndina The last kiss, hún var alveg
ágæt. Reyndar sofnaði Þorbjörg yfir henni, en ég vakti og horfði á
hana alla milli þess sem Pétur veiki hringdi í mig því honum
leiddist svo að vera veikur heima. Ég held í alvöru að hann hafi
hringt 30 sinnum í mig í gær þessi elska.. hehe. Eftir myndina fór
ég bara að tannbursta og reyndi svo að hanga aðeins yfir tölvunni
en sofnaði fljótt. Mig var að dreyma eitthvað algjört rugl í nótt.
Það var þannig að ég og eitthverjir fleiri vorum að henda dauðum
þorski í sjóinn og synda svo eftir honum sjálf aftur. Svo var ég
einusinni að henda fisknum mínum í sjóinn og ég dreif svo stutt. En
ég fór og sótti hann og þá kom allt í einu fjara og allur sjórinn
hvarf. Þá hafði sjórinn skolað lifandi þorski uppá land sem
breyttist svo í hvíta geggjað krípí eiturslöngu. Ég og Þorbjörg
(held að hún hafi verið með mér) vorum geggjað hræddar við
eiturslönguna og náðum að lokka hana inn í búr. Svo voru skyndilega
komnar fleiri eiturslöngur inní húsið mitt á hólmavík sem breyttust
svo í hamstra í lokin á draumnum. En þetta var voðalega spes því
þessi eiturlsöngu eltingaleikur var ekkert grín. Ég man þegar ég
vaknaði í nótt og þá leið mér bara illa því ég er hrædd við
eiturslöngur.
En það eru voðalega margir að
veikjast núna. Eða kannski ekki margir, bara Herdís og Pétur. Þau
eru með alveg eins veiki, sem byrjar með hálsbólgu og endar svo í
miklum hita og beinverkjum og svoleiðis. Ég var að fara með
verkjalyf til Herdísar áðan því hún er ein heima í 111 greyjið. En
hún var voða veik og var bara ælandi og eitthvað. Pétur er að
hressast.. enda farinn að sækja ömmu sína og afa í brú. Það er
fallega gert af honum.
En segjum þetta gott í bili. Og hér
eru myndir af fallegu íbúðinni okkar.

Baðherbergið okkar allt pússað og
fínt.
Eldhúsið okkar fagra.
Partýveggurinn með ýmsum
nauðsynjavörum. t.d. bangsímon diskar og uppþornaðar rósir.
Minn rass að tala í símann og
hreina sjónvarpið og pússuðu hillurnar.
Og að lokum sæta borðið okkar með
fljótandi kerti á.
»
18.04.2007 14:38:07 / athenaa
hér sit ég beinstíf í rúminu mínu.
Hef fátt að gera, og enn minna að segja.
Þetta blogg er tímadrepandi blogg.
ég er búin að vera að reyna að drepa tímann síðan á
laugardaginn..
Það sem gerðist hjá mér þann örlagaríka laugardag
hljómar svo í stuttu máli:
ég keppti á töltmóti á Hellu. Ég var á hestinum Gormi. Honum
brá, hann hljóp að húsi, ég klesstist utáná húsið, hlaut
höfuðáverka og ýmis líkamleg meiðsli og var flutt á landsspítalann
í fossvoginum.
fyrir ykkur sem viljið vita meira um málið:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1264978
&
http://www.visir.is/article/20070416/FRETTIR01/70416026
Seinni fréttin er nú svolítið skondin.. Hún er með
skemmtilegu sprengjusérfræðinga ívafi og grunsamlegu dufli sem rak
á slóðir lögreglunnar á Hvolsvelli..
****************************************************************************
»
10.04.2007 22:20:16 / athenaa
Þarf maður að hafa
eitthvað að segja ?
Einhverra hluta vegna finnst
mér ég ekkert geta sagt ykkur blogglesendur góðir, þrátt fyrir
mikla bið eftir nýju bloggi. En kanski þarf maður ekki að hafa
neitt að segja. Maður segir bara það sem maður vill
segja.
Í þetta sinn
vil ég ekkert
segja.
Ég held ég sé með
sjúkdóm.
Ég hrjáist af fríþrá. Því
miður er sá sjúkdómur ólæknandi, og margir þjást af honum á
mánudögum. Þessi sjúkdómur lýsir sér í miklum hósta, hausverk,
viðrekstri og hori.
Oft leggst þessi sjúkdómur á
mann í enda páskafría, jólafría og sumarfría. Ef hann er kominn á
alvarlegt stig herjar hann á fólk eftir hvert helgarfrí.
Læknar hafa lengi leitað
lyfja við þessari herfilegu fríþrá, en þau finnast því miður
hvergi. Ég hef reynt ýmislegt varðandi þennan sjúkdóm minn, m.a.
snýta honum burt með öllu horinu, prumpa honum burt með öllum
viðrekstrinum eða skafa hann burt úr eyrunum á mér með eyrnapinna.
Það sem hefur reynst mér best var að taka “Verk&Vindeyðandi”
pillurnar. Þá fretar maður þessu úr sér seinnipart mánudags. Ég er
búin að skúbba í mig nokkrum pillum núna fyrst páskafríið er á enda
svo ég geti drattast í skólann á morgun.
...og nei, ég er ekki
geðveik!
»
26.03.2007 23:13:11 / athenaa

-Þór greip eftir honum og tók um hann og
renndi hann í hendi honum svo að staðarnam höndin við sporðinn. Og
er fyrir þá sök laxinn afturmjór.
Og
þetta mun hafa verið örlítil innsýn í Gylfaginningu, sem flestir
nemendur í íslensku 203 leggja hönd á. Mikið ættla ég samt að vona
að nemendur geri eitthvað meira en bara leggja höndina á þessa bók,
því hún hefur frá miklu að segja og manni gefst ekki alltaf
tækifæri á að lesa svo svakalega skrýtna sögu. Ekki skemmir það
heldur fyrir að kennarinn minn er alltaf að raula eitthver kvæði og
ljóð uppúr Snorra-Eddu meðan við stundum námið við litlu borðin og
óþægilegu stólana. Ég er að hugsa um að taka raulið hennar upp á
segulband og setja það svo eitthvernveginn inná ipodinn
minn.
Íslensku kennarinn minn er samt ekki sú eina
skrýtna í skólanum. Ónei, heldur myndi ég kalla hana frekar
heilbryggða miðað við brjálæðinginn hann stærðfræðikennara. Best að
ég skrifi hérna dulitla frásögn frá einum tímanum: Það var einn
daginn snemma morguns að ræfilstuskann hann Þorsteinn
stærðfræðikennari labbaði inn í stofuna og sá þar svona tjald, sem
er notað til að hafa glærusýningar á (myndvarpatjald). Þetta tjald
var hvítt og þannig gert að ef það var niðri þá átti maður toga í
það (eins og gardínu) og þá átti það að rúllast upp efst við
töfluna og vera þar þangað til það væri sótt. (Gaman að segja frá
því að þetta tjald er mikið notað í Hestamennskunni). En hvað um
það, hann Þorsteinn byrjaði að hamast með sínum eigin látalátum við
að toga í tjaldið til að það myndi skreppa saman efst við töfluna.
Það var ekki alveg að ganga hjá honum og þá varð hann mjög reiður
og tautaði allskyns blótyrði ofan í bringuna á sér. Svo skindilega
tók hann bræðistkast og réðst að tjaldinu og reif það niður og
eyðilagði það með því að henda því í vegg og sparka í
það.
Þetta gerðist í
alvöru.
En nóg um skólann. Helgin var verý skemmtileg
bara. Pétur birtist á fimmtudaginn hér á Selfossi gersamlega upp
úr þurru. Ég er svosem ekkert að kvarta yfir því, það er best í
heimi þegar hann er hérna hjá mér. Við gerðum ýmislegt saman
þann dag, en svo komu Heidí og Þorgils. Við heidí fórum í
Baldvin og Þorvald og Pétur og Þorgils léku saman á meðan. Svo á
föstudaginn var ökutími í bænum. Það gekk allt í haginn. Svo
missti ég af heidí keppa á Vissu, en náði samt að horfa á
Therese og Brynju. Það var roosa stuð. Svo var bara farið á
Selfoss að sofa. Daginn eftir tók við undirbúningur fyrir ball
seinna um kvöldið. Þetta ball var mjög fínt bara. Ég hitti Benna
og Gizur, þeir voru bara hressir. Svo voru ég og Pétur orðin svo
þreytt að við sátum bara svoldinn tíma úti í bíl að bíða eftir
samflotsfólki okkar sem voru Herdís, Gummi og Dagmar. En daginn
eftir það var ferming hjá Elís, sem er frændi Péturs og
Þorbjargar. Hún var bara mjög fín og afar athyglisvert að vera
inni í risa stóru húsi fullu af fólki sem maður þekki ekki
neitt. Haha ! Nema náttúrulega Pétur sæti minn og Þorbjörg og
Grétar og Hafdís og Sturlaugur og Svanhildur. Já og fleiri
reyndar. Svo má ekki gleyma keiluferðinni sem við fórum í. Það
voru ég og Pétur sæti og Grétar og Þorbjörg og Jón NÖRD og Helga
og Þórhallur. Geggjað gaman.
Gott blogg?
Kommentiði.
Bless!

»
18.03.2007 01:02:35 / athenaa
Ekki veit ég nú af hverju titillinn minn er slasaður.. en
allavega er ég eins og ég hafi lent undir valtara fyrir hádegi.
Þannig er mál með vexti að ég var á járninganámskeiðinu
langþráða.
Hér kemur stutt lýsing á því:
Þetta byrjaði á sýnikennslu hjá Sigga Torfa járningameistara.
Hann skellti einni skeifu undir einn ógeðslega viðbjóðslega
blóðugann fót (það vantaði hest á fótinn). Og við horfðum öll á og
sögðum svo að þetta væri bara a piece of cake eins og maður segir á
góðri íslensku. En svo reyndist ekki, þetta er eitt það erfiðasta
sem ég hef nokkurn tíman gert. Að standa með beygð hné og bogið
bak, það er mjög erfitt til lengdar. Ég var á þessu námskeiði frá
09:00 - 16:00. Og eftir það langann tíma var ég búin að standa með
beygð hné og bogið bak í c.a. 5 og hálfa klukkustund (með stuttum
stoppum). Eins og hnén mín og bakið er nú að þá ligg ég hér í sófa
heima hjá Ester systir og get ekki hreyft mig.
Þannig liggur í því að ég er að passa hjá hennni systur minni. Ég
er semsagt að passa þrjú indisleg kríli sem hlýða stóru frænku
sinni í einu og öllu ieins og þeim einum er lagið. Reyndar var
Urður að vakna rétt áðan, En Búkkinn (ég), stakk upp í hana könnu
með vatni og snuði, rétti henni hornið á sænginni sinni, og þá bara
steinsofnaði hún aftur þetta yndi.
Við ynja og óðinn erum bara búin að vera að hanga í tölvu í allt
kvöld.. svo reyndar horfðum við pínu á harry potter. Ótrúleg mynd
þar á ferðinni. Þetta var sko fyrsta myndin sem við vorum að horfa
á.. ég hef reyndar aldrei gerst svo fræg að klára þá mynd.. og
auðvitað gafst ég upp á fyrstu blaðsíðu við lestur þessarar bókar..
ég er með svo óþróaða lestrarkunnáttu.
Tásla liggur hérna við hliðina á mér.. Fyrir ykkur sem ekki vita
það þá er Tásla kötturinn á heimilinu. Hún er mikil vinkona mín
núna.. því ég er búin að vera að klappa henni á fullu.. það er eins
og henni hafi ekki verið klappað í ár, henni finnst það svo
notalegt !
Urður var að vakna bara rétt í þessum töluðu orðum.. ég er
nýkomin fram að halda skrifunum áfram eftir að hafa farið inn og
hlustað á smá mömmu, pabba grát. En það er nú allt í góðu. því ofur
Búkkinn er að passa 
En já..ættli maður fari ekki bara að segja þetta ágætt svo ég
geti farið að sofa hjá Urði greyjinu.
Blessíkex
--Björk&þrír sofandi gríslingar.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|